kíkiđ á kallinn:O)Halla E Hansen

http://barnaland.is/barn/64646/

HallóHalla E Hansen

Labbakútur er mættur
fæddist 21.07.07
tæpar 17 merkur og 52cm
og hann er yndislegur
kv Halla og strákarnir

Sjaldan fellur óbarinn biskup langt frá eykinni....Halla E Hansen

Nei hæ:O) þið haldið eflaust að ég sé búin að eiga og hafi gleymt að láta ykkur vita...aldeilis ekki!!!!  ég er vöknuð fyrir allar aldir get bara ekki legið lengur, stellið í mér er  hreinlega að liðast í sundur...en allavegana við fórum til ljósmóður síðasta þriðjudag og svo attur í gær...örlitil framför.. semsagt það er eitthvað að gerast bara frekar hægt..ég á tíma í gangsetningu á miðvikudaginn 18.07 kl 16  eg vona ég þurfi nú ekki að bíða þangað til..ég hef fulla trú á að þetta gerist í dag..já fulla trú segi ég!!! ég ætla að tileinka deginum hinum ýmsustu húsráðum sem mar hefur heirt til að koma ser af stað..byrja á að kaupa ferskan ananas þegar búðir opna og ætla svo að senda Ginga út í hádeginu á kínabúlluna herna fyrir utan að kaupa hevy sterkan karryrétt, skelli mér i bað með lavenderolíu, göngutúr og eithvað svona sem mar hefur heirt og lesið.Jæja foreldrarnir eru hérna og mamma hans Gretars og Hálfdán og allir að bíða spenntir er bara með samviskubit að þetta gangi ekkert hehe en það er aldeilis notalegt að hafa fólkið herna hjá okkur, mar er trítaður eins og prinsessa. það hefur verið smá veðmál í gangi hjá nokkrum aðilum um dagsetningu..þvímiður eru allir búnir að tapa nema Hálfdán hann veðjar á daginn í dag, kanski bara að gamli kallinn vita hva hann syngur...hva segið þið fólk ætli hann  láti sjá sig kjanski í kvöld??
jæja krakkar mínir þarf að fara að gera eitthvað gagnlegt
kv Halla og innipúkinn:O)

Labbakútur óskastHalla E Hansen

Jæja krakkar dagurinn mikli er á morgun!!!! hef samt ekki mikla trúa á að hann láti sjá sig fyrr en eftir helgi en sjáum til....já er búin að vera með bloggofnæmi þykir það leitt ekki mikið nýtt og spennandi búið að gerast svosem...bara svona rólegheit...Mamma og Pabbi eru mætt á svæðið og verða hérna í 2 vikur þa er svooo ljúft... gaman að hafa þau og timinn líður hraðar, foreldrar Ginga koma svo á þriðjudaginn, það er nóg að gerast núna, krakkinn lætur svo sjá sig á næstu dögum vonandi... þetta er alveg komið gott finnst mér.
jæja krúttubossar þetta verður ekki lengra í bili
kv Halla og hinir  

nýjar myndirHalla E Hansen

Hæ:O)
Alltaf þegar eg skoða myndaalbúm fletti eg alltaf hratt í gegnum landslagsmyndir og myndir af húsum og blómum og svona áhugaverðu sem maður tekur myndir af en enginn nennir að skoða...þannig ég er búin að setja inn nýtt albúm aðalega með myndum af mér!! og nokkrum af Ginga líka náttrlega.
Ég hef ekkert að seigja og nenni ekki að skrifa
bæjó elskurnar mínar
kv Halla komin næstum 7 mánuði jey!!

Gleđilega PáskaHalla E Hansen

Sælt veri fólkið og gleðilega páska!!
Ég sest við skriftir meðan purusteikin mallar í ofninum... jújú svona er komið fyrir manni ég er bara að elda fyrstu hátíðarmáltíðina húsmóðirin sjálf... það stóð lika í málsháttinum mínum "lifir enn í gömlum glæðum" hihi ég meina betra seint en aldrei erþaki..., hér í Skotlandinu er allt í rólegheitum bara, Grétar fer í skólann kl 9 og er búinn kl 14, ég vakna oftast um hádegi og dundast eitthvað og svo förum við yfirleitt í eitthvað stúss, þa virðist vera nóg að huga að, veðrið er búið að vera æðislegt síðan ég kom bara sumarfílingur og mér líður rosalega vel hérna. Ég var að horfa á Kim Larsen myndband á síðunni hjá Heru og littla ég bara táraðist þetta minnti mig svo á Danmörku og hvað ég sakna fjölskyldunar...mér finnst erfitt að við sjéum svona dreifð út um allan hnöttinn en svona er þetta mar er líka eitthvað lítill svona þegar maður er að framleiða nýtt líf...jájá mússí mússí ógislega væmin...þið verðið bara að díla það ég get ekki alltaf verið hipp og cool og trendy hehe. jæja það styttist í krílið 27 vikur komnar í höfn wuhú... við erum búin að sanka að okkur hellings, þetta kemur smátt og smátt, það er allt svo ódyrt svo ég tali nú ekki um ef maður dettur inn á útsölu, barnaföt og bara allt á 100-200 kall stykkið þá er gaman!! ég er samt mjög prúð sko, jæja ætla að fara að borða páska matinn í gulu lopasokkunum frá tengdó
Gleðilega hátíð
Bæjó
Halla

Surprise!!Halla E Hansen

Jæja hér er mikið um að vera ég er að flytjast til Glasgow í næstu viku ístaðin fyrir í lok april, ástæðan er að ég treysti mér ekki til að klára þessa önn vegna þess hve það er mikið verklegt og ég þyrfti að vinna á verkstæðunum heilu dagana og ljósmóðirin sagði mér að ég yrði að taka því rólega því ég er frekar slæm af verkjum í lífbeininu, grindinni og bakinu og einföldustu hreifingar sem reyna á þessi svæði eru bara askoti erfiðar en ég er mun betri núna er ég hef náð að hvílast, ég vil ekki taka neina sénsa þannig ég er á förum til hanns Grétars minns og þar mun ég æfa mig í að vera húsmóðir haha veitir ekki af. Eg er búin að ílengjast aðeins hérna það er svo margt sem þarf að huga að við flutning og þa gengur bara fint. Hér eru allir svo elskulegir og hjálpsamir og vilja allt fyrir óléttu konuna gera. Í gær mætti ég niðrí skóla eftir tíma hjá krökkunum því ég Kristina og Marly bestu vinkonur mínar hér ætluðum að skreppa og fá okkur kaffi svona í huggulegheitunum en þegar við mættum á kaffihúsið var bara allur bekkurinn mættur með blöðrur og pakka svona SURPRISE kveðju party fyrir Höllusína ég ógilega vandræðaleg eittkva en svo ánægð og uppmeðmér að allir voru mættir til að kveðja mig!! svo gaman!! svo eftir þetta húllumhæ fórum við nokkrar stelpur út að borða og þa var æðislegt, spjallað og hlegið svona eins og stelpur gera haha, ég hélt svo heim á leið og hinir fóru á djammið aðsjálfsögðu. það er nú soldið erfitt að kveðja Eindhoven þó það verði nú gott að komast til kallsins en það er gott að vita að maður á góða að þegar mar kemur aftur, þau eru ekkert á förum.Spennandi tímar framundan sumar í Skotlandi með ungann:O) og svo til íslandsins að hitta alla. 24 vikur komnar í höfn, þetta líður nú bara ágætlega hratt. Ég er hress og skapsveiflurnar skiptust út fyrir líkamlega verki sem mér satt best að seigja finnst skárri en sjáum til hva eg seigi þegar eg er orðin enn meira fjall. Mamma sagðist líka ætla að hætta að hafa áhyggjur af mér þegar ég væri komin til Glasgow þá gæti kallinn hugsað um mig, en svona er þetta að vera mamma alltaf að hafa áhyggjur af únganum sínum jafnvel þó hann sé að nálgast þrítugt hihi. Já hér er komið vor þó ég kalli það sumar, ég meina þetta er eins og íslenskt sumar.
Hallalittla kveður jákvæð og væmin með sól í hjarta

Heran í heimsóknHalla E Hansen

Já hún Hera mín var í heimsókn og var það heldur betur notalegtHlæjandi þa var spjallað, slegið á létta strengi, hangsað, verslað og notið veðurblíðunnar. Fórum til Amsterdam og ætluðum að kikja á Anne Frank húsið en þa var svo mikil röð að við ákváðum að nenna ekki að eiða deginum í það, þannig við rölltum um og höfðum það gott í stórborginni og veðurblíðunni. Jæja þá er slatti af myndum komnar inn og bumbumyndirnar sem allir eru að bíða eftir.
Hef þetta ekki lengra í bili
Bæjó
Halla

...Halla E Hansen

Hæhó
sónerinn leit vel út og eins og það á að vera, littli kúturinn bara sofandi og snéri rassinum í okkur mest allann tímann, en mikið rosalega er ég óþolinmóð og samt bara rétt rúmlega hálfnuð. Annars er ég búin að vera að passa hund síðustu daga, gengur bara vel nema hún skilur ekki hebreskuna mina helv... kvikindið, hún er semsagt frá Israel og mín var sett í skyndikúrsus í hebresku til að geta agad dýrið haha, hún hlíðir samt alveg þegar ég seigi kondu kerling!! ágætis tilbreyting að hafa hund hjá sér þó hún jafnist ekkert á við hann Rokkmund minn, hann er náttrlega bara prins:o) Jæja Hera mín kemur eftir 3 daga wey!!!
hef þetta ekki lengra í bili heyrumst gott fólk
Halla litla í útlöndum sem saknar fólksins síns:(

Ći bara ţú veistHalla E Hansen

Bara rétt að láta vita af mér. ekki mikið að gerast svosem 3 önn var að byrja og útlit er fyrir að hun verði sú strembnasta, má bara alls ekki missa af lestinni því held eg verði ekki i miklu ástandi til að taka þetta á endasprettinum hehe. Næsti sónar er á fimmtudaginn er spennt að vita hvort allt sé ekki í himnalagi og svona. Ég og Grétar skruppum til Edinborgar er eg var stödd í Skotlandinu og það var óskaplega falleg borg hafði bara satt að seigja ekki hugmynd um það, okkur langar að kikja aftur í sumar þá verður hun ennþá skemtilegri. Fyrir þá sem kanski ekki vita planið þá mun eg klára hér í Niðurlöndum í lok April og flytjast til Glasgow þar sem eg mun unga út og svo komum við heim til Islands i lok sumars og svo framvegis. Gaman að seigja frá því að platan(smáskifan) hans Grétars var að koma út núna 19 feb og er til sölu um allan heim eða svo( allavega fullt af stöðum hehe) salan gengur vel skils mér er gegt að reyna að setja mig inn í hvernig allt þetta tónlistardæmi virkar. Ég vil hérmeð opinberlega óska honum til hamingju með þennan merka viðburðHlæjandi svo ætlar hún Hera mín að kikja til lillu systir eftir viku það verður nú notarlegt er búin að lofa að kaupa karmelluísinn og hún mun elda frikkurnarUllandi
sjáums hress bless
Halla

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburđarteljari

Könnun

Hvađ heldur ţú?